Hér kemur kjúklingarétturinn sem ég gerði um helgina.
um það bil 800 g kjúklingabringur, skornar í litla bita
1 laukur, fínt saxaður
5 hvítlauksrif, pressuð
2 msk ferskt engifer, rifið
um það bil 800 ml tómatmauk
2 msk túrmerik
2 msk kummin
2 msk garam masala
1/2 msk cayennepipar
200 ml hrein jógúrt
salt
olía
ferskur kóríander
Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklingabitana á öllum hliðum. Nokkrar mínútur eru nægur tími þar sem kjúklingurinn verður síðan soðinn í sósunni. Takið kjúklinginn af pönnunni og steikið laukinn þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið þá hvítlauk og engifer út á og steikið í um það bil 1 mínútu. Bætið þá tómatmaukinu, túrmerik, kummin, garam masala og cayennepipar út á. Látið sjóða og bætið svo kjúklingnum út í og sjóðið við meðalhita í um það bil 15 mínútur. Hrærið í af og til. Takið af hitanum og hrærið jógúrtinni út í. Smakkið og bætið salti út í ef þarf. Berið fram heitt með meira af hreinni jógúrt og ferskum kóríander. Gott að hafa hrísgrjón og naan-brauð með. Við keyptum tilbúið naan-brauð sem við pensluðum með bræddu smjöri og settum svo inn í ofn í nokkrar mínútur.
No comments:
Post a Comment