Ég er nýbúin að uppgötva þetta te. Grænt te með epla- og mintubragði. Get drukkið endalaust af því.
14 October, 2015
13 October, 2015
Chicken Tikka Masala
Hér kemur kjúklingarétturinn sem ég gerði um helgina.
um það bil 800 g kjúklingabringur, skornar í litla bita
1 laukur, fínt saxaður
5 hvítlauksrif, pressuð
2 msk ferskt engifer, rifið
um það bil 800 ml tómatmauk
2 msk túrmerik
2 msk kummin
2 msk garam masala
1/2 msk cayennepipar
200 ml hrein jógúrt
salt
olía
ferskur kóríander
Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklingabitana á öllum hliðum. Nokkrar mínútur eru nægur tími þar sem kjúklingurinn verður síðan soðinn í sósunni. Takið kjúklinginn af pönnunni og steikið laukinn þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið þá hvítlauk og engifer út á og steikið í um það bil 1 mínútu. Bætið þá tómatmaukinu, túrmerik, kummin, garam masala og cayennepipar út á. Látið sjóða og bætið svo kjúklingnum út í og sjóðið við meðalhita í um það bil 15 mínútur. Hrærið í af og til. Takið af hitanum og hrærið jógúrtinni út í. Smakkið og bætið salti út í ef þarf. Berið fram heitt með meira af hreinni jógúrt og ferskum kóríander. Gott að hafa hrísgrjón og naan-brauð með. Við keyptum tilbúið naan-brauð sem við pensluðum með bræddu smjöri og settum svo inn í ofn í nokkrar mínútur.

12 October, 2015
Grjónagrautur í ofninum
Börnin hoppuðu hæð sína á loft í morgun þegar ég tjáði þeim að það yrði grjónagrautur í kvöldmatinn. Mér dettur ekki til hugar að gera hann í potti eftir að ég rakst á þessa uppskrift á www.ljufmeti.com. Ég brenni nefnilega alltaf grautinn við og það jafnvel þó ég standi yfir honum allan tímann og hræri og hræri. Þessi útgáfa er bara snilld. Enginn viðbrenndur matur og engin sár úlnliður eða öxl.
- 2 1/2 dl hrísgrjón
- 1 1/4 ltr nýmjólk
- nokkrar smjörklípur
- 1 tsk salt
- 1 msk sykur
Hitið ofninn í 175°C. Blandið öllum hráefnum saman í stórt eldfast fat (minnst 2 ltr). Setjið álpappír yfir og bakið í miðjum ofni í um það bil 1 1/2 klst. Þegar grauturinn er tilbúinn er efsta laginu á honum flett af og hrært vel í honum. Þynnt með mjólk ef þarf.
Um helgina gerði ég svakalega góða Chicken Tikka Masala. Uppskriftina mun ég setja inn þegar ég nenni að íslenska hana.
09 October, 2015
Taco-terta
f. 6-8
1
lítill blaðlaukur
1
msk ólífuolía
hvítlaukur
(ég notaði 1 stórt rif)
1
pk af stórum tortillakökum
500
g nautahakk
1
pk taco kryddblanda
1
krukka tacosósa (bragðstyrkur eftir smekk)
2,5
dl sýrður rjómi
1
dl rjómi
200
g Philadelfía rjómaostur
1
lítil dós maís
salt
grófmalaður
svartur pipar
ca
3 dl rifinn ostur
1.
Stillið ofninn á 225°C
2.
Hitið olíuna á stórri pönnu og steikið blaðlaukinn þar til
hann er orðinn mjúkur. Brúnið þá hakkið á pönnunni. Setjið
taco-kryddið, hvítlaukinn og taco-sósuna út á og látið malla í
smástund.
3.
Blandið saman sýrðum rjóma, rjóma, rjómaosti, maís og rifnum
osti í skál. Saltið og piprið eftir smekk.
4.
Setjið tortillakökur, hakk og ostablöndu lagskipt í lausbotna
form. Byrjið á að setja tortillaköku á botninn, síðan hakk,
tortillaköku, ostablöndu, tortillaköku o.s.frv. Endið á
ostablöndu.
5.
Bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 20 mín. eða þar til tertan er
byrjuð að verða gullinbrún. Takið út og látið standa í um 5
mín. áður en kanturinn á forminum er tekinn af og tertan borin
framan.
Borið fram með sýrðum rjóma, salsa, guacamole og fersku salati
Rak augun í þetta gamla blogg núna í morgun. Mundi ekki að ég hefði verið með það enda aðeins um hálfs mánaðar ævintýri hjá mér. Ætla að endurvekja það því mig er lengi búið að langa til að skella uppskriftunum mínum inn á blogg, þegar ég hef prófað nýja uppskrift sem mér eða okkur líkar við. Finnst betra að geta haft þær á vefnum heldur en í skjali því þessar blessuð tölvur hrynja með reglulegu millibil og ég tapa þá oft góðum uppskriftum.
Subscribe to:
Posts (Atom)